WIM – World of Icelandic Music Exhibition in Harpa
Skrunaðu áfram
↓Velkomin í Heim íslenskrar tónlistar
Komdu í ferðalag um sögu íslenskrar tónlistar og uppgötvaðu hvernig landið, sagan og þjóðarandinn hafa mótað tónlistarlandslag Íslands.
Frá rímum yfir í rapp og alþjóðlegt sviðsljós, hvað hefur mótað íslenska tónlist? Með grípandi hljóðleiðsögn lifnar sagan við, þar sem tvísöngur, klassík í aldanna rás og uppreisnarseggir íslensks rokks koma meðal annars við sögu. Má ef til vill líka bjóða þér að stýra okkar ástsælu Sinfóníuhljómsveit Íslands?





Velkomin í Hörpu
Upplifunarsýningin Heimur íslenskrar tónlistar er staðsett við aðalinngang Hörpu.
Algengar spurningar
Við erum staðsett inni í Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, rétt innan við aðalinngang hússins á 1. hæð.
Hljóðleiðsögnin okkar er í boði á íslensku, ensku, þýsku, frönsku, spænsku, ítölsku, pólsku, sænsku, dönsku og kínversku.
Sýningin er sérstaklega hönnuð fyrir gesti 10 ára og eldri, en yngri börn geta einnig haft gaman af henni.
Já. Heimur Íslenskrar Tónlistar er aðgengileg hreyfihömluðum og auðvelt er að ferðast um sýninguna. Ef þú þarft frekari aðstoð getur þú leitað til starfsfólks í afgreiðslu.
Nei, ekki er leyfilegt að taka mat eða drykk inn í sýningarrýmið, að undanskildum vatnsbrúsa sem hægt er að loka tryggilega.
