|

Hafa samband

Heimilisfang

Harpa, Austurbakka 2
101 Reykjavík

Sími

Miðasala: 528 5050

Tölvupóstur

Miðasala: midasala@harpa.is
Almennar fyrirspurnir: info@wim.is

Samfélagsmiðlar

Spurningar?

Finnur þú ekki svar við spurningu þinni? Sendu okkur línu.

Spurt & svarað

Algengar spurningar

Hljóðleiðsögnin okkar er í boði á íslensku, ensku, þýsku, frönsku, spænsku, ítölsku, pólsku, sænsku, dönsku og kínversku.

Sýningin er sérstaklega hönnuð fyrir gesti 10 ára og eldri, en yngri börn geta einnig haft gaman af henni.

Við mælum með að kaupa miða fyrir fram á netinu en einnig er hægt að kaupa miða í móttökunni eða í miðasölu Hörpu sem er einnig á 1. hæð.

Nei, ekki er leyfilegt að taka mat eða drykk inn í sýningarrýmið, að undanskildum vatnsbrúsa sem hægt er að loka tryggilega.


Aðgengi

Hljóðleiðsögnin er nú í boði á íslensku, ensku, frönsku, spænsku, þýsku og kínversku. Fleiri tungumál bætast við síðar. 

Já. Heimur íslenskrar tónlistar er aðgengileg hreyfihömluðum og auðvelt er að ferðast um sýninguna. Ef þú þarft frekari aðstoð getur þú leitað til starfsfólks í afgreiðslu. 

Upplifunin byggir á hljóðleiðsögn og myndefni í skjám og einnig skjávörpun á veggi í rýminu. Einnig er dempuð lýsing í rýminu á mörgum stöðum. Hægt er að stilla hljóðið í hljóðleiðsagnarbúnaðinum en birtu frá skjám er erfitt að aðlaga að hverjum og einum. Vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar og aðstoð, info@wim.is .

Í Hörpu er upphitað bílastæðahús neðanjarðar með sérmerktum stæðum fyrir gesti með skerta hreyfigetu. Þaðan er greið leið að Heimi íslenskrar tónlistar með lyftu eða rúllustiga upp á 1. hæð. Nánari upplýsingar um bílastæði gesta má finna á harpa.is.

Staðsetning

Við erum staðsett inni í Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, rétt innan við aðalinngang hússins á 1. hæð.

Harpa er í hjarta miðborgarinnar og auðvelt er að komast þangað gangandi, á hjóli, með strætó eða bíl. Strætisvagnar stoppa við Hörpu og Lækjartorg er í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Hjólastæði eru við húsið og í bílakjallaranum, þar sem einnig eru fjölmörg bílastæði og hleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Heimur íslenskrar tónlistar er staðsettur í miðbæ Reykjavíkur, í göngufjarlægð frá fjölmörgum veitingastöðum, börum og vinsælum áfangastöðum.

Harpa er einnig áfangastaður í sjálfu sér. Þar er hægt að skoða einstakan arkitektúr hússins, njóta útsýnisins yfir höfnina, fá sér veitingar, sækja tónleika og aðra viðburði eða heimsækja barnahornið Hljóðhimna með yngstu gestunum.

Í nágrenninu má meðal annars finna:

The Reykjavík EDITION

Hafnartorg Gallery og Mathöll

Sólfarið

Reykjavíkurhöfn

Hallgrímskirkju

Tjörnina

Listasafn Íslands
Kolaportið