Opnunartímar og verð
Opnunartímar
Sýningin er opin alla daga frá kl. 10:00 til 20:00.
Athugið að opnunartími getur breyst á stórhátíðum.
Aðgangsverð
Við mælum með því að bóka miða fyrir fram en einnig er hægt að kaupa miða á staðnum.
Gott að er að hafa í huga að gefa sér að minnsta kosti 35 mínútur til að njóta sýningarinnar.
Aðgengi
Almennar upplýsingar
Heimur Íslenskrar Tónlistar er upplifun sem hentar gestum á öllum aldri og með mismunandi þarfir. Fyrir sérstakar óskir eða fyrirspurnir vinsamlegast hafið samband við okkur á info@wim.is.
Foreldrar og forráðamenn bera ábyrgð á börnum sínum meðan á heimsókn stendur.
Hljóðleiðsögn er í boði á eftirfarandi tungumálum: íslenska, enska, þýska, franska, kínverska og spænska.





Bílastæði
Bílakjallari Hörpu er opinn allan sólarhringinn. Alls eru 545 stæði á tveimur hæðum og af þeim eru stæði með 13 hleðslustöðvum. Bílakjallarinn er vel lýstur, upphitaður og með aðgengi beint inn í Hörpu. Nánari upplýsingar um bílastæði er að finna á harpa.is
Aðstoð fyrir sjónskerta
Harpa býður upp á aðstoð fyrir einstaklinga með sjónskerðingu til að hjálpa þeim að rata á milli staða innan hússins. Vinsamlegast látið miðasöluna vita fyrirfram til að tryggja viðeigandi aðstoð með því að hafa samband við boxoffice@harpa.is eða í síma 528 5050.
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða
Harpa býður upp á gott aðgengi fyrir hjólastóla og er með þrjár lyftur sem tengja bílastæðahúsið beint við 1. hæð þar sem Heimur íslenskrar tónlistar er staðsett við aðalinngang hússins. Öll aðstaða í Hörpu er aðgengileg hjólastólanotendum.
Leiðsöguhundar
Aðstoðar- og leiðsöguhundar eru velkomnir í Hörpu. Vinsamlegast tryggið að hundurinn sé alltaf með viðeigandi búnað á meðan heimsókn stendur. Hundurinn þarf að vera greinilega merktur sem leiðsögu- eða hjálparhundur með beisli og/eða vesti.