Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvernig Heimur Íslenskrar Tónlistar safnar, notar og miðlar persónuupplýsingum þínum þegar þú heimsækir vefsíðu okkar eða kaupir vörur eða þjónustu í gegnum hana.
Síðast uppfært: 8. Júní 2026.
Söfnun persónuupplýsinga
Þegar þú heimsækir vefsíðu okkar söfnum við tilteknum upplýsingum um tækið sem þú notar, hvernig þú notar vefsíðuna og þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að afgreiða pantanir þínar. Við gætum einnig safnað frekari upplýsingum ef þú hefur samband við okkur vegna þjónustu eða fyrirspurna. .
Í þessari persónuverndarstefnu er hugtakið “persónuuplýsingar” notað um allar upplýsingar sem unnt er að rekja til einstaklings. Sjá nánari upplýsingar hér að neðan um hvaða persónu upplýsingum við söfnum og í hvaða tilgangi.
Upplýsingar um tækni
Dæmi um persónuupplýsingar sem safnað er: Útgáfa netvafra, IP-tala, tímabelti, upplýsingar úr vafrakökum (cookies), hvaða síður eða vörur þú skoðar, leitarorð og hvernig þú notar og hefur samskipti við vefsíðuna.
Tilgangur söfnunnar:
Að tryggja eðlilega virkni vefsíðunna, bæta þig og að framkvæma greiningu á notkun vefsíðunnar til að bæta og fínstilla þjónustuna.
Uppruni söfnunnar:
Upplýsingum er safnað sjálfkrafa með vafrakökum (cookies), annálaskráa (log files), vefvitum (web beacons), merkjum (tags) og sambærilegri tækni þegar þú heimsækir heimasíðuna.
Miðlun persónuupplýsinga
Þessum upplýsingum kann að vera miðlað til þjónustuaðila okkar, Tix, sem annast vinnslu þeirra fyrir okkar hönd.
Upplýsingar um pöntun.
Dæmi um persónuupplýsingar sem safnað er: Nafn, heimilisfang fyrir reikninga, afhendingar heimilisfang, greiðsluupplýsingar og netfang.
Tilgangur söfnunar:
Að afgreiða pantanir, vinna greiðslur, sjá um afhendingu eftir því sem við á, senda staðfestingar og reikninga, eiga samskipti við viðskiptavini, koma í veg fyrir svik og veita upplýsingar um vörur, þjónustu og tilboð í samræmi við þær óskir sem viðskiptavinur hefur gefið upp.
Uppruni upplýsinga:
Upplýsingar eru veittar af viðskiptavininum sjálfum.
Söfnun persónuupplýsinga:
Upplýsingum er deilt með þjónustuaðila okkar, Tix, og greiðslumiðlara okkar, Straums, eftir því sem nauðsynlegt er til að vinna greiðslur og afgreiða pantanir.
Miðlun persónuupplýsinga
Við miðlum persónuupplýsingum til þjónustuaðila sem aðstoða okkur við að veita þjónustu okkar og efna samninga við viðskiptavini:
Við notum Tixly fyrir miðasölu og netverslun. Nánari upplýsingar um hvernig Tix vinnur persónuupplýsingar má finna í persónuverndarstefnu fyrirtækisins.
Við notum Straum til greiðslumiðlunar. Nánari upplýsingar um hvernig Straumur vinnur persónuupplýsingar má finna í persónuverndarstefnu Straums.
Við kunnum einnig að miðla persónuupplýsingum þegar það er nauðsynlegt samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum, til að bregðast við lögmætum beiðnum stjórnvalda eða til að gæta lögmætra hagsmuna og réttinda okkar.
Notkun persónuupplýsinga
Við notum persónuupplýsingar þínar til að veita þér þjónustu okkar, þar á meðal til að bjóða vörur til sölu, vinna úr greiðslum, sjá um sendingar og afgreiðslu pantana og halda þér upplýstum um nýjar vörur, þjónustu og tilboð.