Velkomin í Heim Íslenskrar Tónlistar. Með því að heimsækja sýninguna, nota vefsíðu okkar eða taka þátt í þjónustu, viðburðum eða verkefnum á okkar vegum, samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Við hvetjum þig til að kynna þér þá vandlega.
Síðast uppfært: 8. júní 2026.
Til að tryggja að allir geti notið sýningarinnar er ætlast til að gestir sýni kurteisi og tillitssemi gagnvart öðrum gestum og starfsfólki. Heimur íslenskrar tónlistar (e. The World of Icelandic Music) áskilur sér rétt til að vísa frá einstaklingum sem sýna óviðeigandi eða ógnandi hegðun eða fara ekki eftir reglum og öryggisleiðbeiningum The World of Icelandic Music og Hörpu.
Vinsamlegast farið vel yfir allar upplýsingar áður en kaup á miðum eru staðfest, þar sem ekki er víst að hægt sé að gera leiðréttingar eftir á. Miðahafar bera ábyrgð á að ganga úr skugga um að rétt dagsetning og réttur fjöldi miða hafi verið valin. Ferðaskrifstofur, fyrirtæki og aðrir aðilar sem kaupa miða fyrir hönd gesta (einstaklingar eða hópar) bera sömu ábyrgð. The World of Icelandic Music ber ekki ábyrgð á mistökum við miðakaup sem rekja má til þriðja aðila.
Með kaup á miða samþykkir miðahafi að fara eftir gildandi lögum ásamt reglum og öryggisleiðbeiningum hjá The World of Icelandic Music á meðan heimsókn stendur. Athugið að miðar á sýninguna eru seldir í íslenskum krónum (ISK). Verð sem birt er í öðrum gjaldmiðlum getur því tekið breytingum vegna gengissveiflna.
Miðahafar með sérþarfir, þar á meðal vegna skertrar hreyfigetu, ofnæmis eða viðkvæmni fyrir hljóði, lýsingu, myndvörpun eða öðrum þáttum sýningarinnar, bera ábyrgð á að upplýsa starfsfólk Hörpu vita af þörfum sínum fyrir heimsókn. Hver gestur heimsækir Hörpu og The World of Icelandic Music á eigin ábyrgð.
Foreldrar og forráðamenn sem heimsækja sýninguna með börnum bera ábyrgð á öryggi þeirra og eftirliti með þeim allan tímann.
Gestir með líkamleg veikindi eða heilsufarsvandamál, eða sem eru barnshafandi, eru hvattir til að nýta sér hjólastóla aðstoð ef þörf krefur. Harpa býður upp á aðgengi fyrir hjólastólanotendur.
Stórar töskur eða bakpokar eru ekki leyfðir inni á sýningunni. Gestir þurfa að gera ráðstafanir fyrir viðeigandi geymslu á stærri munum sínum áður en farið er inn á sýningarsvæðið.
Óheimilt er að endurselja miða í hagnaðarskyni. Ef miði er seldur af hagnaði af öðrum aðila en The World of Icelandic Music, Hörpu, Tix eða tengdum aðilum þeirra, áskilur The World of Icelandic Music sér rétt til að ógilda slíka miða.
The World of Icelandic Music ábyrgist ekki að áminningar um heimsókn séu sendar með SMS eða tölvupósti. Það er á ábyrgð kaupanda að fylgjast með dagsetningu og upphafstíma heimsóknarinnar.
The World of Icelandic Music ber ekki ábyrgð á persónulegum eigum fyrir, á meðan eða eftir heimsókn.
Miðasala Hörpu, sem selur miða fyrir hönd viðburðarhaldara, vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndarstefnu Hörpu á harpa.is.
Endurgreiðslustefna
Kaupandi miða eða gjafakorts hefur rétt til að fella niður kaup og óska eftir endurgreiðslu innan 14 daga frá kaupdegi. Þetta gildir um öll miðakaup, hvort sem þau eru gerð á vefsíðu The World of Icelandic Music, Hörpu, Tix eða í miðasölu Hörpu. Athugið að þessi réttur gildir ekki ef minna en 14 dagar eru til viðburðar þegar miðinn er keyptur.
Til að óska eftir endurgreiðslu innan 14 daga frá kaupdegi skal senda beiðni á netfangið midasala@harpa.is. Í beiðninni skulu koma fram nafn kaupanda, netfang, símanúmer og upplýsingar um miðakaup.
Ef skilyrði fyrir endurgreiðslu eru uppfyllt verður kaupverð endurgreitt innan 14 daga með sama greiðslumáta og notaður var við upphaflegu greiðsluna.
Athugið að miðar á viðburðinn eru seldir í íslenskum krónum (ISK) og því getur endurgreiðsla í öðrum gjaldmiðlum verið breytileg vegna gengissveiflna.
Almennir skilmálar fyrir gjafakort
Gjafakort hjá The World of Icelandic Music gilda í fjögur ár frá útgáfudegi.
Hægt er að fá gjafakort afhent rafrænt, sækja þau á miðasölu Hörpu eða fá þau send með pósti. Enginn sendingarkostnaður er fyrir gjafakort sem send eru með pósti.
Ekki er hægt að kaupa gjafakort með öðru gjafakorti.
Almennar upplýsingar:
Austurbakka 2, 101 Reykjavík
Sími: 528 5000
Miðasala: 528 5050
Netfang: harpa@harpa.is