Þetta er sýnigrein til að sýna alla helstu fítusa í greinakerfinu.

Fyrirsagnir

Titill greinarinnar verður sjálfkrafa aðalfyrirsögnin (H1). Í textanum má nota H2 fyrir kafla og H3 fyrir undirkafla. Veldu línu og svo Heading 2 eða Heading 3 í T-valmyndinni efst í ritlinum. Hver H2 birtist í efnisyfirlitinu við hlið greinarinnar.

Svona lítur H3 út

Undirkaflar fara ekki í efnisyfirlitið.

Listar

Punktalisti og númeraður listi eru í sömu T-valmynd (Unordered List og Ordered List):

  • Punktalisti fyrir atriði sem eru jafn mikilvæg
  • Ýttu á Enter fyrir nýtt atriði
  • Ýttu tvisvar á Enter til að hætta í listanum
  1. Númeraður listi þegar röðin skiptir máli
  2. Til dæmis skref í leiðbeiningum

1. Listicles: númeraðar fyrirsagnir

Ef H2-fyrirsögn byrjar á tölu og punkti, eins og „1. Harpa“, birtist talan stór fyrir ofan fyrirsögnina. Þannig eru „8 bestu …“-greinar gerðar. Það þarf ekki að gera neitt annað en að skrifa töluna.

2. Myndir

Smelltu á + efst í ritlinum og veldu Upload til að setja inn mynd. Smelltu svo á blýantinn á myndinni til að skrifa myndatexta.

Harpa séð utan frá og speglast í vatninu fyrir framan
Myndatexti birtist hér undir myndinni. Hann er valfrjáls.

Alt-texti er stutt lýsing á því sem sést á myndinni, fyrir skjálesara og Google. Hann fylgir myndinni sjálfri: farðu í Media, opnaðu myndina og fylltu út Alt text, bæði á íslensku og ensku (Locale efst til hægri).

3. Tilvitnanir

Tilvitnun birtist stór

Veldu Blockquote í T-valmyndinni. Hentar fyrir stutt og sterk orð, ekki heilar efnisgreinar.

4. Spotify

Smelltu á + og veldu Spotify. Límdu inn hlekk úr Spotify (⋯ → Share → Copy link). Það virkar fyrir lög, plötur, flytjendur, lagalista og hlaðvörp.

5. Algengar spurningar

Smelltu á + og veldu FAQ til að bæta við spurningakafla. Hann birtist sem dökkur flötur sem brýtur upp textann og fer sjálfkrafa í efnisyfirlitið. Ef reiturinn Heading er tómur heitir hann „Algengar spurningar“.

Algengar spurningar

Hvar sem er í greininni, en oftast neðst. Spurningarnar fara líka til Google sem FAQ-gögn.

Veldu orðin og smelltu á hlekkjatáknið. Þú getur vísað á aðra síðu eða grein á vefnum, eða á slóð utan hans.

Þegar þú smellir á Publish changes. Þangað til er hún drög sem aðeins innskráðir sjá.

SEO og slug

  • SEO-flipinn: Meta title og Meta description eins og þau birtast á Google. Ef þau eru tóm er notaður titillinn og inngangurinn.
  • Slug (í hliðarstikunni): slóðin, wim.is/articles/… Hún fyllist út frá titlinum en þú getur breytt henni. Ef slóðinni er breytt eftir birtingu þarf að setja inn Redirect frá þeirri gömlu.
  • Tungumál: grein birtist bara á tungumáli þar sem hún hefur bæði titil og texta. Skiptu um Locale efst til hægri til að skrifa ensku útgáfuna.